Líf eftir nám
07.04.2008 13:02:44 / Friðbjörg

Nýr staður og nýtt upphaf

http://leikkennari.blog.is er að prufa að færa mig þangað:)

» 0 hafa sagt sína skoðun

31.03.2008 15:57:23 / Friðbjörg

Dýrt og aftur dýrrt

Já þá er seinasti dagur mars mánaðar hálfnaður og mér fannst vera 1 mars í fyrradag:s En ég get a.m.k. séð björtu hliðina á því að 1.apríl sé á morgun því má ég víst plata, þarf að hugsa eitthvað gott plat í tilefni dagsins. heheheheeh

Það var alveg nóg að gera hjá mér um helgina á laugardag fórum við í afmæli til Editar og Kristrúnar en þær fögnuðu saman 34 ára afmæli. Afmælið var haldið heima hjá Lilju og var margt um manninn. Við komum með þeim fyrstu og fórum síðust, klikkar ekki þessu ;) Í gær var ég svo að syngja við tvær fermingarmessur og var það voða gaman. Þetta var alveg svona gæsahúðarstemmning og væri ég sko alveg til í að mæta um næstu helgi og syngja í fermingarmessunum. 8) Eftir messurnar kíktum við í heimsókn til Söru og Pétur í sveitina.

En talandi um næstu helgi þá verðum ég og Jóhanna með námskeiðið Börn og Umhverfi eða ég verð á laugardeginum ef að nóg þátttaka næst. Svo er vinnan hjá Eirík að fara út að borða um kvöldið en ég býst ekki við að ég komist. Það er ekki auðvelt að fá pössun fyrir skvísuna einnig er hún stundum ekki alltof ánægð ef að mamman er ekki heima á kvöldin. Það hefur pabbinn fengið aðeins að finna fyrir þegar ég hef farið á kóræfingar. En hún er annars alltaf mjög góð á kvöldin. Hún vill bara hafa þetta eins og mamma gerir þetta :)

Í gærkvöldi ákváðum við í leti okkar að panta pizzu sem við gerum nú reyndar alls ekki oft og pöntuðum frá einu pizzukeðjunni í bænum. Þetta var svona tvennutilboð og fengum við 2 12" pizzur, brauðstangir og sósu. Fyrir þessi ferlegheit þurftum að greiða hvorki meira en minna 2770.- Ég verð að segja að mér finnst það hrikalega mikið. Við ætluðum að kaupa tilbúin kjúkling í Krónunni en hann var því miður búin og ákváðum því að panta þessa ágætu pizzu í staðinn. Okkur reiknast til að fyrir sama pening hefðum við getað keypt um 3 og 1/2 kjúkling og fengið með 4 lítra af kóki.8| Svo ég tali áfram um verðlag þá hef ég fundið fyrir hækkandi verðlagi í verslunum. Ég kaupi stundum svona núðlur og hafa þær verið á svona 19 kr en nei þær eru komnar í 25 kr. Nú fer maður að spara engar pizzur og engar núðlur ;) hahahaha ætla að hafa steiktan fisk í matinn í kvöld og soðnar kartöflur, ummmmm namm gæti ekki verið betra ;)

Er að fara með litlu skvísuna á miðvikudag í þriggja mánðar skoðun og fær hún þá sína fyrstu sprautu og ég hlakka nú ekki sérstaklega til þess. Var svo að hugsa um að fara í smá menningarferð á fimmtudag til Reykjavíkur. Kíkja jafnvel í Kringluna eða Smáralindina. Hef ekkert farið núna eiginlega síðan í byrjun desember. Kíkja kannski á kaffihús og fá sér café Latte, slurp slurp.....

En hafið það gott öll sömul sem lesa þetta :haha:
Friðbjörg pizzumeistari





» 2 hafa sagt sína skoðun

26.03.2008 10:01:45 / Friðbjörg

Fjórði í páskum

Jæja þá eru páskarnir bara búnir voru auðvita fljótir að líða eins og allir aðrir dagar. Við höfðum það bara mjög gott um þessa daga fórum m.a. í skírn og svo í matarboð til mömmu og pabba á páskadag, kíktum í heimsóknir og slöppuðum af heima. Maður heldur alltaf að vorið sé komið en það virðist vera aðeins lengra í það en ég hélt :) Það er orðið svo bjart úti á morgnana og höfðum stelpurnar orð á því í morgun þegar þær löbbuðu í skólann. En pælið í því að það er ekki mjög langt í það að dagurinn styttist aftur, ótrúlega er ég eitthvað bjartsýn ;)

Á morgun verður litla skvísan mín 3 mánaða úff hvað þetta er fljótt að líða. Hún á að fara í skoðun í næstu viku og fær þá sína fyrstu sprautu8| (hrollur). Annars er hún komin með fína reglu er nær alltaf sofnuð fyrir eða um 10 á kvöldin og sefur til 7-8 eða 9 á morgnana og er svo sofnuð aftur 2 tímum seinna og sefur þá í svona 3-4 tíma. Síðan tekur hún styttri dúra eftir það.

Hef eiginleg ekkert meira að segja nema ég ætla að vera með saumó í kvöld og bjóða upp á gómsæta súpu og jafnvel einhverja voða góða köku í eftirrétt.
Þar til næst
Páskakanínan
Friðbjörg

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.03.2008 13:16:17 / Friðbjörg

Allt svo eggjandi :)

Þá fara páskarnir að detta inn koma líklega með krónunni sem er í frjálsu falli þessa dagana. Með fallinu erum við að slá ný og ný íslandsmet, erum að verða ferlega góð í frjálsum. Bensínið er í sögulegu hámarki, gengi erlendra gjaldmiðla er í svingandi sveiflu og yfirvöld segja að þau ætla ekkert að gera við þessu ástandi, ónei og sei sei. Ætli verslanir drífi sig ekki núna og hækki allt upp úr öllu valdi, það eru nú að koma páskar. Launahækkanir þeirra sem samþykktu nýgerðan kjarasamning auðvita löngu farnar fyrir bý. Það svo sem kom ekki á! Held að það hefði alveg mátt búast við einhverju falli þar sem uppsveiflan í þjóðfélaginu síðustu ár hefur verið ótrúleg, held samt að engin hafi búist við svona miklu falli. 

Í þessum óróleika höfum við það alveg ágætt það eru þó smá veikindi á heimilinu en Aþena Ósk er lasin og er búin að vera það síðan á sunnudag. Við skelltum okkur þó í 2 fermingarveislur um helgina og var það voða gaman. Ég er búin að senda umsóknina um framhaldsnámið í póst en sótti um "Stjórnun menntastofnanna". Er ekki mikið vongóð um að komast inn en er samt nokkuð góð ;)

Svo er páskahelgin að nálgast og er bóndinn að vinna alla helgina en er reyndar í fríi á laugardag því þá er okkur boðið í skírn. Ég var svo að hugsa um á páskadag að fara til mömmu og pabba þ.e.a.s. eftir að hafa sungið í páskamessunni. Það verður örugglega gaman. 

jæja ætla að fara út í þetta góða veður, verst að mið skvísan mín kemst ekkert út í páskafríinu sínu. 
Kveðja
Friðbjörg í frjálsum
 

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.03.2008 13:48:48 / Friðbjörg

Margt að gerast

Þá er vinnuvikan hálfnuð og bara nokkrir dagar í helgi :)

Í gær fór ég í "menningarferð" í Borgarnes, fórum vinkonurnar með krílin okkar og löbbuðum um nesið. Það var pínu kalt en við erum svo mikil hraustmenni að við létum það nú ekki á okkur fá. Kíktum á kaffihús og skoðuðum í verslanir. Skelltum okkur auðvita aðeins í Grísabúðina. Svo var árshátíð hjá stelpunum í gærkvöldi og við foreldranir kíktum á þær. Þær stóðu sig auðvita alveg rosalega vel enda komin af svo fjölhæfu fólki hahahaha......

Það er svo gaman að því hvað eldri systurnar eru ólíkar, önnur alvarlegri og yfirveguð þegar hin er algjör skotta og segir það sem hún hugsar. Sú eldri er svo nokkuð sama hvernig hún er klædd (það er þó að breytast) þegar hin vill helst BARA vera í pilsum og glimmerpeysum. Kjólar eru í miklu uppáhaldi og þarf alltaf að ákveða hvað á að vera í daginn áður og ef við erum að fara eitthvað þá er hún búin að ákveða í hverju hún ætlar að vera í við það tækifæri. Hún er löngu búin að segja mér í hverju hún verður í fermingunni um helgina!8) Það verður gaman að sjá hvernig Freyja Sif verður, kæmi mér ekki á óvart þó hún yrði lík mér eins og ég var sem krakki. Mjög feimin og hlédræg og er það enn, ekki satt?

Finn það að litla skvísan verður aðeins óörugg við nýjar aðstæður og er ég því að reyna að vera dugleg að fara með hana en það er samt alltaf notalegast að vera heima og hafa það kósý. Það er svo skrítið hvað maður verður háður börnunum sínum. Maður er farin að sakna þeirra eftir smá stund. Sérstaklega finn ég núna hvað ég er háð litlunni minni(þær eldri eru orðnar svo sjálfstæðar) að ef ég skrepp eitthvað ein þá er ég alltaf með hugann við hana. Við erum háðar hvor annarri, sem er bara yndisleg tilfinning.

Nú er ég aðeins farin að velta því fyrir mér hvað ég ætla að vera þegar ég verð stór. Ég er auðvita orðin leikskólakennari en ég finn það að ég er ekki búin að læra. Þannig að nú er ég að velta fyrir mér að sækja um framhaldsnám. Veit að það getur verið erfitt að komast inn í það en ég ætla samt að sækja um. Ég hlýt að komast inn einhvern tímann hehehe.;)

En læt þetta blaður duga en langar að nefna hvað mér fannst foreldranir í gær í Komapási hugrökk. Ég get ekki ímyndað mér að það sé auðvelt að tala um svona voða atburð í sjónvarpinu, sér í lagi þar sem það er ekki langt um liðið. Eins vil ég nefna að mér finnst ótrúlegt að fólk skuli geta keyrt á og neita svo. Hvar er samviskan ??? Getur fólk virkilega lifað með þetta á samviskunni.

Kveðja
Friðbjörg stelpumamma



» 2 hafa sagt sína skoðun

07.03.2008 15:15:59 / Friðbjörg

Aftur komin helgi!

Það er bara alltaf komin helgi og alltaf komin mánudagur. Mér finnst tíminn alltof fljótur að líða, ætli maður geti gert eitthvað til að hægja aðeins á honum? Tek við öllum ráðum.

Ég sótti um framlengingu á fæðingarorlofinu útaf veikindum mínum og var nú alveg viss um að ég fengi neitun um það en viti menn fékk það tekið gilt svo orlofið lengist hjá mér.

Var voða myndarleg í morgun og bakaði pönnukökur. Ég reyni yfirleitt að baka eitthvað á föstudögum það er ágætt að eiga eitthvað með kaffinu :) Róleg helgi framundan. Ég á að vera í messunni á sunnudag og er það bara fínt. Ætlaði að mæta á æfingu í gær og taka Freyju Sif með en hún var sofandi þegar æfingin byrjaði og ég tímdi ekki að vekja hana. Átti því bara rólegt kvöld í gærkvöldi. Var nú að vonast eftir því að fara út að labba í dag þar sem snjórinn var nú farin en nei viti menn þá snjóaði í nótt og engin göngufærð. Það er svo mikið slabb að ég myndi örugglega bara spóla. Það er nú örugglega skemmtileg sjón en ætla ekki að skemmta öðrum, a.m.k. ekki í dag ;)

Um næstu helgi eru svo 2 fermingar sitthvorn daginn svo það verður nóg að gera svo það er ágætt að eiga bara rólega helgi núna. Bóndinn er í fríi alla helgina.

En alla vega á pönnukökur ef ykkur langar að kíkja í kaffi ;)
Kveðja
Friðbjörg pönnsla

» 2 hafa sagt sína skoðun

03.03.2008 15:15:23 / Friðbjörg

Jíhítí

já nú er tími til að fagna :) fór í síðasta skiptið upp á Hospital áðan svo lengi sem ekkert kemur úr sárinu. Þannig að þetta tók BARA 8 vikur, hvað er það á milli vina ;)

Annars er allt gott að frétta fengum alveg fullt fullt af gestum um helgina og var það auðvita bara voða gaman. Skvísan er alltaf jafn dugleg að sofa svaf á laugardag heila 12 tíma um nóttina. Er svo að fara með hana í vigtun á morgun og er alltaf jafn spennandi að sjá hvað þau eru búíin að þyngjast.

En annars er bara ekkert stress og verið hress
bless bless
Friðbjörg útskrifaða

» 1 hafa sagt sína skoðun

29.02.2008 09:06:56 / Friðbjörg

Föstudagur til fjár?

Sælt verið fólkið,
þá er komin enn einn föstudagurinn og það er spurning hvort þessi sé til fjárs? Það má þó búast við að fá launin greidd í dag svo það er líklegt að hann verði til fjárs :)

Ég er enn að mæta upp á sjúkrahús og er búin að mæta alla þessa viku fyrir utan gærdaginn. Læknar skoðuðu þetta og er ekkert hægt að gera bara leyfa þessu að gróa svona hægt og rólega. Á morgun held ég upp á það að það séu 8 vikur síðan að ég byrjaði að díla við þetta :s Ég sem mætti með súkkulaði fyrir konurnar á skiptistofunni síðasta föstudag þar sem það átti að vera síðasti dagurinn:evil: en það þýðir víst lítið að vera að pirra sig á þessu.

Það er búið að vera nóg að gera í félagslífinu þessa vikuna, saumaklúbbur á mánudaginn og svo var Rauðvínsklúbbur í gærkvöldi. Fór fyrst á kóræfingu náði svo í Freyju Sif. Freyju Sif fannst skemmtilegra í rauðvínsklúbbnum en saumaklúbbnum, það lá a.m.k. betur á henni í gær. Hún er ennþá sofandi og er ég að bíða eftir því að hún vakni. :)

Arkaði snjóinn í gær og var það fínt manni hitnaði aðeins að troðast með vagninn yfir mesta snjóinn. Enda var svo mikil hálka undir svo það var enn verra að labba.

Á von á tveimur frændsystkinum mínum í dag í heimsókn sem ætla að gista í nótt. Það verður gaman og örugglega mikil stemmning.

Var að hugsa um að skella köku í ofninn svo ég bið að heilsa að sinni og gangið hægt um gleðinnar dyr 8|
Kveðja
Friðbjörg snjóþrammari

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.02.2008 15:49:22 / Friðbjörg

Gekk vel

Já það gekk allt voða vel í skoðuninni í morgun og þurfum við ekki að hafa neinar áhyggjur. Það er smá gat á milli hólfa sem á að lokast. Við eigum að koma með hana aftur þegar hún er orðin 6 mánaða bara til að tjékka á hvort það sé ekki alveg örugglega lokað.

Ég var auðvita bara að djóka með að þetta væri síðasti dagurinn sem ég þyrfti að mæta upp á sjúkrahús. Alltaf sami húmorinn í mér nei nei ég þarf að mæta á mánudag og ég ætla ekki að segja að það sé síðasti dagurinn :s

En annars ekkert nýtt að frétta:lol:
Kveðja
Friðbjörg

» 2 hafa sagt sína skoðun

21.02.2008 15:43:25 / Friðbjörg

Flottur dagur

Jæja er nýkomin inn eftir að við mæðgurnar fengum okkur þennan fína göngutúr. Alveg yndislegt veðrið og um að gera að njóta þess á meðan það er, ekki satt?

Á morgun er síðasti dagurinn sem ég þarf að fara í skiptingar upp á sjúkrahús húrra er bara búin að vera að fara í 7 vikur:s þetta er orðið ágætt.8|

Stefni á því að kíkja í höfuðborgina á laugardag og skella mér í heimsókn til gamla settsins og kíkja jafnvel á aðra ættingja. Eiríkur er að vinna nefnilega alla helgina.

Erum að fara með Freyju Sif í fyrramálið til hjartalæknis en það var hringt áðan og vill hann sjá hana strax! Fékk pínu hnút í magann þegar ég heyrði það en er jafnframt fegin að hún verði skoðuð strax en ekki beðið með það í margar vikur.  Hún er alltaf jafn góð vakir á kvöldin og getur stundum þá orðið óróleg en sefur allar nætur. Það er alveg hægt að segja að það sé komin nokkuð góð regla á hana.

En farið nú út í góða veðrið ;)
Friðbjörg á gangi

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.02.2008 22:30:37 / Friðbjörg

Loksins hægt að blogga

;)8|Blogg blogg blogg.......
Síðan er búin að liggja niðri síðustu daga og var ég mikið að hugsa um að fara með síðuna eitthvað annað. En nú er komið nýtt lúkk og nýjir hlutir svo ég ætla að halda áfram hérna. Vonandi virkar þetta betur :d

Höfum það bara mjög gott ég er ennþá í heimsóknum upp á sjúkrahús en fer þó ekki á hverjum degi. Þetta er allt að koma og vonandi er næsta vika sú síðasta enda eru komnar núna 6 vikur, úff orðin örlítið þreytt en það vill til að ég er þolinmóð ;) Fór í fyrsta skiptið með skvísuna út að labba í dag, vá hvað það var gott :) fórum og sóttum eldri stelpurnar í skólann. Það var doldið rok og smá rigning svo þetta var stuttur göngutúr. Sú litla sefur alltaf mjög vel og svaf í morgun til klukkan 10 en þá ákvað ég að vekja hana :| Henni finnst voða gott að lúlla, hún dafnar og þyngist vel en hún var í skoðun í gær. Heyrðust einhver aukahljóð í hjartanu sem á að skoða nánar en við höfum ekki áhyggjur af því.

Vikan hjá Eirík er búin að vera viðburðarrík en á mánudag tók hann við viðurkenningu fyrir að bregðast rétt við slysi sem varð á síðasta ári og svo á þriðjudaginn var kallinn bara í beinni í Kastljósinu. Stóð sig alveg rosa rosa vel. http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4365611 hér er linkurinn ef einhver missti af þessu :)

Ég skellti mér á þorrablót á laugardaginn eða á matinn og hluta af skemmtiatriðunum. Var í burtu svona ca 2 tíma. Það var ágætt maður var þó alltaf með hugann heima um hvort allt væri í lagi eða ekki.:s En auðvita var allt allt í lagi.

Á sunnudag ætlar kór Akraneskirkju að syngja við messu í Kópavogi en ég ákvað að fara ekki með þar sem Eiríkur er að vinna alla helgina og ég nenni ekki að vera að redda pössun og púsla stelpunum hér og þar. Fer bara með seinna ;)

En jæja látum þetta duga að sinni
Kveðja
Friðbjörg sem loksins komst út að labba

» 1 hafa sagt sína skoðun

07.02.2008 11:22:50 / Friðbjörg

Nýr mánaður

Góðan og blessaðan daginn,

já það er sko bara hörkuvetur úti allt á kafi í snjó og rok. Það er samt ekki alveg brjálað sem betur fer.  Ég er búin að vera dugleg að fara út með Freyju Sif, renndi mér suður með allar stelpurnar á þriðjudag til Önnu systir og kom við í Fjarðarkaupum. Kíkti í gær loksins upp í vinnu með hana og eins og við var að búast var mikið um bjöllumhljóm. Það var líkt og jólin væru komin ;)

Ég ákvað að sleppa því þetta árið að fara út í bæ og syngja og uppskar þar af leiðandi ekkert nammi :S en eldri dæturnar létu sig ekki vanta og fengu nammi. Mér fannst þó að það hefði verið minna en í fyrra, það er greinilega farið að harðna í dalnunm ;)

Svo er mér boðið í partý á morgun og þorrablót á laugardag en veit ekki hvort ég láti sjái mig eitthvað. Það er pínu erfitt að fara frá krílinu:$

 En þetta er nóg í bili

Friðbjörg snjókerling


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.01.2008 13:51:32 / Friðbjörg

Frost á fróni

Nú er frost á fróni brrrrrrr.... hvað það er kalt. Við höfum það annars mjög gott held að þetta sé allt að koma hjá mér fór reyndar í blóðprufu í morgun til að athuga statusin á mér. Þarf sennilega ekki að mæta upp á sjúkrahús um helgina, fæ helgafrí hahahaah ;)

 Hef ekki farið mikið með Freyju Sif út þar sem það er eitthvað kvef í henni og töluvert af slími. Eiríkur fer að vinna á mánudag og er þá sælan búin ;)

 Skellti mér á kóræfingu á þriðjudag og ætla að fara í kvöld líka. Þetta er ekki nema klukkutíma æfingar svo það er allt í lagi. Við förum svo í afmæli suður á sunnudag svo það verður smá reisa á fjölskyldunni..

En þar til næst Friðbjörg í fríi um helgina


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.01.2008 11:09:59 / Friðbjörg

Komin með nafn

Jæja þá er skvísan komin með nafn og fékk hún fallega nafnið Freyja Sif og var athöfnin voða fín, hún reyndar var ekki alveg sátt og grét töluvert. Það lagaðist þó þegar hún hafði fengið nafnið sitt.

En læt heyra í mér betur síðar

Friðbjörg í goðafræðinni


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.01.2008 10:27:22 / Friðbjörg

Bóndadagur

Sælt verið fólkið og gleðilegan Bóndadag

það er búið að ákveða að skíra skísuna á sunnudag en þá verður hún akkurat mánaðargömul. Við ætlum að skíra heima en við gerðum það síðast og fannst okkur það voða notalegt. Allir eru voða forvitnir um hvað hún á að heita og eru uppi margar getgátur ;) Hildur Ýr ætlar að halda á henni undir skírn og er voða montin yfir því. Aþena Ósk verður kertaberi svo allir fá eitthvað hlutverk. Hildur Ýr ætlar einnig að spila eitt lag í athöfninni.

Við skelltum okkur í gær í höfuðborgina en það er í fyrsta sinn sem skvísan fer út fyrir bæjarmörkin. Það gekk voða vel enda vorum við ekki lengi. Fórum örskot í Ikea en henni fannst ekkert svakalega skemmtilegt þar :) skil hana alveg!

Ég er alltaf 1x á dag upp á sjúkrahúsi og er þetta orðið voða heimilislegt þegar ég kem, já sæl, nei bara mætt í dag o.s.frv. Ég er að fá eitthvað slen í mig seinnipartinn en er hitalaus. Þessu fer nú vonandi að ljúka. 8|

Ætla svo að fara bráðlega í heimsókn með hana upp í vinnu en hef ekki lagt í það enn þar sem það eru svo miklar pestar í gangi, hér er sko virkur handþvottur á heimilinu. Stelpurnar fá að þvo sér í gríð og erg:$ en það er líka bara gott. Maður er ekki alveg til að skvísan nái í einhverja pest svona lítil.

Hún er sko algjör engill hún sefur yfirleitt 7-8 tíma á nóttunni. Síðustu daga hefur hún verið að vakna klukkan 8. Þá baða ég hana jafnvel og svo er hún sofnuð aftur til hádegis. Bara yndislegust:)

Jæja ætla að skreppa á Sha hér er linkur á myndasíðu allra nýbura á Akranesi þar er auðvita mynd af skvísunni minni http://sha.is/default.asp?sid_id=21218&tId=6&Tre_Rod=002|001|003|001|&qsr

Kveðja

Friðbjörg bóndakona


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9
Klukkan
Dagsetning
9. febrúar 2012
Heimsóknir
Í dag:  7  Alls: 14249
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 7 apríl